Prentun og prentlausnir

LXB býður fjölbreyttar prentlausnir fyrir fyrirtæki, verslanir, veitingastaði og viðburði. Við aðstoðum við allt ferlið frá yfirferð prentskráa og efnisvali til prentunar, frágangs og tilbúinnar vöru.

Prentun í stórum formötum með Mutoh prentara – LXB

Plaköt og kynningarefni

Prentun á plakötum og kynningarefni fyrir verslanir, viðburði, sýningar og herferðir. Við aðstoðum við að velja rétta stærð og efni eftir því hvar prentið á að vera notað.

Prentaðar auglýsingar fyrir Orkuna á bensínstöð – LXB

Límmiðar og filmur

Við prentum límmiða og filmur í mismunandi stærðum og gerðum fyrir merkingar, kynningar og daglega notkun fyrirtækja. Hægt er að sérsníða prentun, lögun og frágang að hverju verkefni.

Prentuð límfilma með sérsniðinni grafík – LXB

Prentuð grafík fyrir skilti

Við framleiðum prentaða grafík fyrir skilti, plötur og aðrar merkingar. Lausnirnar henta meðal annars fyrir verslanir, skrifstofur, upplýsingaskilti og tímabundnar kynningar.

Prentað fasteignaskilti fyrir OS Eignir – LXB

Við förum yfir prentskrár, stærðir og upplausn áður en framleiðsla hefst. Ef þörf er á aðstoðum við með uppsetningu grafíkur og undirbúning svo lokaútkoman verði eins góð og mögulegt er.