Stórprentun og risaprentun
LXB býður stórprentun og risaprentun fyrir fyrirtæki, byggingarsvæði, verslanir, viðburði og sýningar. Við prentum grafík í stórum formötum fyrir notkun innan- og utandyra og aðstoðum við allt ferlið frá yfirferð prentskráa og efnisvali til frágangs og uppsetningar.
Prentlausnir fyrir stór verkefni
Þegar grafíkin þarf að sjást úr fjarlægð skiptir máli að velja rétt efni, rétta upplausn og góðan frágang. Við veljum prentlausn eftir stærð verkefnisins, staðsetningu og því hversu lengi grafíkin á að vera uppsett.
Mesh
Segl og borðar
Sérprentuð segl henta vel fyrir auglýsingar, byggingar, girðingar, viðburði og tímabundnar kynningar.
Við getum útbúið segl með viðeigandi frágangi og festingum eftir stærð, staðsetningu og notkun.
Mesh er létt og loftgegndræpt prentefni sem hentar sérstaklega vel fyrir stórar framhliðar, vinnupalla, girðingar og byggingarsvæði þar sem vindálag skiptir máli.
Það er góð lausn þegar þörf er á mjög stórri grafík án þess að loka yfirborðinu alveg fyrir vindi.
Veggmyndir og veggfilmur
Stórprentun þarf ekki alltaf að vera utandyra. Sérprentuð veggfilma og veggmyndir geta breytt heilu rými og skapað sterka sjónræna upplifun.
Við framleiðum sérsniðna grafík fyrir skrifstofur, verslanir, hótel, veitingastaði og önnur atvinnurými.

