Verkefnið
Viðskiptavinur: Fosshotel
Þjónusta: Viðgerð og RGB baklýsing
Framkvæmd: LXB
LXB gerði við núverandi skilti Fosshotel og endurnýjaði lýsinguna með RGB baklýsingu. Markmiðið var að tryggja jafna lýsingu á öllum stöfum og gefa skiltinu nýtt og áberandi útlit.
Ljósinu er beint aftur á bak þannig að mjúkur litríkur ljómi myndast á fletinum á bak við stafina. Útkoman er skýr og glæsileg á kvöldin án þess að framhlið stafanna sjálfra sé upplýst.
Þarftu að gera við eða uppfæra ljósaskilti?
Við aðstoðum við viðgerðir, endurnýjun lýsingar og sérsniðnar lausnir með LED og RGB lýsingu. Hafðu samband og segðu okkur frá skiltinu.

